|
|
|
|
|
Vinnuskúrar- Gámalæsingar eru á öllum hornum svo hlaða megi húsunum hvert ofan á annað þar sem rými er takmarkað. Húsið þarf að festa niður (vegna vindálags) og má þá nota hornin sem stagfestingar.
- Hægt er að byrgja fyrir glugga hússins með því að draga fyrir sérstök tjöld innanfrá.
- Húsin eru flutt á bílum Gámaþjónustunnar sem eru útbúnir sérstökum krókbúnaði og tryggir það skjóta flutninga og auðveldar tilfærslur.
- Þegar nauðsynlegt er að hlaða húsunum má losa þau af flutningsgrind fyrirhafnarlítið.
- Dyrum má læsa að utan og innan.


Gámaþjónustan hf. býður nú til leigu sérhönnuð færanleg hús (vinnuskúra) til margs konar nota. Þau geta nýst sem vinnuskúrar fyrir verktaka eða sem alls konar starfsmannaaðstaða fyrir stofnanir og fyrirtæki.
Húsin eru 14m2 að flatarmáli einangruð í hólf og gólf og með tveimur opnanlegum gluggum. Þau eru útbúin með raflögn, tenglum, rafmagnsofni og ljósum. Húsin eru úrvalslausn fyrir þá sem þurfa á bráðabirgðahúsnæði að halda í lengri eða skemmri tíma.
Góð reynsla er af notkun húsanna hér á landi. Notagildi þeirra hefur reynst vera margvíslegt. Þau hafa meðal annars verið notuð sem vinnuskúr og verkfærageymsla verktaka, færanleg rannsóknarstofa, skrifstofa tæknimanna, lögreglustöð á útihátíð, sjúkraskýli og verslun á götumarkaði.
Allar nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum okkar í síma 535-2510. |